Postpáskagreining
13. apríl 2004 | 0 aths.
Þá eru páskarnir að baki og maður mættur til vinnu uppfullur af gleði, hamingju og tilhlökkun að láta til sín taka og betrumbæta líf borgaranna.
Rétt að líta aðeins yfir verkefnalista páskahelgarinnar og sjá hverjar efndir urðu:
- Taka til í vinnuherberginu/skrifstofunni/ruslahaugnum
- Hálfnað verk þá hafið er...
- Leysa nokkur vandamál með vefumsjónarkerfi GSK
- Komst hálfu skrefi nær vandanum, en er ekki búinn að leysa
Virkja RSS lista fyrir thorarinn.com
- Listinn er farinn að virkja en íslensku stafirnir virðast fara illa í validatora. Vona að Már geti liðsinnt mér í því.
Flokka gömul föt til að skila í Sorpu
- Búið! Á bara eftir að fara með þau í Sorpu
- Skrifa bréf
- Tókst ekki að klára, verkefni vikunnar
Lesa í LOTR
- Föruneytið nýsloppið úr Moríu
Lesa í DWWS
- Búinn
- Venja mig af óskiljanlegum skammstöfunum
- Tókst ekki, bjó m.a.s. til nýja: "m.a.s.a.s" sem má t.d nota í setningum á borð við "Ég kann m.a.s.a.s. sætabrauðsdrengur á rússnesku!"
Hanna nýtt lúkk á thorarinn.com
- Þetta var eitt af þeim (fáu) verkefnum sem fengu næga athygli og eru langt komin - nýtt er útlit væntanlegt fyrir 17. júni
- Vera duglegur að heimsækja fólk
- Bæði og...
Finna afsakanir fyrir því að gera bara það af þessum lista sem mér finnst skemmtilegt
- Lýsing á páskahelginni í hnotskurn :)
Eins og vera ber í tiltektum finnur maður hluti sem hugsanlega gætu verið nothæfir í nútímanum (og hluti sem maður skilur ómögulega hvers vegna maður ákvað að geyma). Ég dró til dæmis fram hálsfesti sem ég fékk í fermingargjöf en hef ekki gengið með síðan einhvern tíman í menntaskóla. Hún verður prufukeyrð næstu daga.
And that's all I have to say about that...