Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

iBíll, Ford og nætur(b)rölt

Í gær settist ég inn í nokkuð merkilegan bíl, en inn í hann er nýlega búið að mixa með mjög snyrtilegum hætti 20GB iPod glymskratta. Græjan sjálf er geymd í dockingstöð í hólfi milli framsætanna og er algerlega stjórnað úr stýrinu (flett milli laga og þess háttar) í gegnum innbyggða útvarpið. Ég fékk m.a. að sjá myndasyrpu af innsetningunni þar sem meira eða minna allar hlífar og hólf frá sætum að útvarpi var rifið út til að koma tengingum fyrir og svo öllu púslað saman aftur.

Að öllum líkindum er þetta eini bíllinn á Íslandi sem búið er að græja svona - enda þessi stýritækni tiltölulega nýtilkomin. Við reiknuðum það út að iPodinn með öllum millistykkjum, stýringum og snúrum kostaði innfluttur frá USA um helming þess sem sami sama iPod hefði kostað einn og sér í Appleversluninni.

Um kvöldið var mér svo boðið í grillveislu - ekki amalegt að lenda í veislu annað kvöldið í röð. Þar sá ég um að grilla ostfyllta sveppi og að matreiða sætar kartöflur á grillinu (þessar helstu klisjur sem ég kann :) Yfirkokkurinn sá um að grilla vænan bita af lambakjöti og laga vískísósu með. Við átum svo ógurlega að þegar við stauluðumst niður í bæ upp úr miðnættinu var varla að maður hefði pláss fyrir bjór.

Okkar fyrsta stopp var á Hressingarskálanum. Fljótlega eftir að við vorum sestir að bjórum vorum settist við barinn maður sem minnti alveg lygilega mikið á stórleikarann Harrison Ford. Eftir að hafa gjóað augum á hann við og við varð ljóst að hann var ekki bara líkur honum, heldur var þetta Ford sjálfur. Við reyndum auðvitað að láta ekki á neinu bera og leyfa manninum að sötra sinn drykk í friði. Það gerði þetta extra skondið að með okkur var Íslendingur sem hefur búið í Bandaríkjunum undanfarinn áratug eða svo. Hann hafði aldrei séð neinar frægar þarlendar stórstjörnur fyrr en þarna í stuttri heimsókn á Íslandi.

Við höfðum orð á því að það væri merkilegt að svona frægt fólk skyldi geta fengið að vera í friði á bar í Reykjavík og ekki laust með að maður væri stoltur af löndum sínum sem sýndu friðhelgi stjarnanna þessa tillitssemi. Það leið þó ekki á löngu áður en sirkusinn fór í gang. Ekki það að neinn hafi beinlínis verið að böggast í honum svo ég yrði var við, en í kurteislegri fjarlægð fór að safnast fólk sem hvíslaði sín á milli og reyndi að sjá glytta í kauða, einn og einn reyndi að gefa sig á tal við hann og þegar myndavélar fóru að birtast var okkur farið að líða hálfilla að fylgjast með þessu og yfirgáfum staðinn. Fordinn hefur fengið nóg um svipað leyti því hann rölti út fljótlega á eftir okkur og við mættum honum í Austurstræti nokkrum mínútum síðar á hringsóli okkar um bæinn. Það var óneitanlega skondið að fylgjast með fólki snarsnúa sér við þegar það mætti honum. Kappinn var bara sportlegur, jakkalaus í bláum gallabuxum og gallaskyrtu með gulleyrnalokk. Líklega gist á einhverju hóteli í miðbænum.

Við sáum hann ekki aftur en kíktum inn (mislengi) á ýmsa staði. Ég rakst meðal annars á Hjalta sirkushetju í hlutverki barþjóns á 11unni, leikskólasystur og eina umsækjandann um starfið mitt sem ég þekki (af 50!) á Ölstofunni, Skúla frænda og aðdáendur hans og fleira fólk sem ég man ekki eftir í svipinn. Lox fór eins og oft áður í þessum félagsskap að endað var á Grand Rokk og steig ég upp frá backgammon borðum um hálffimmleytið og rölti heim á leið. Ofátið hafði hægt mjög á bjórdrykkju svo ég skipti yfir í gosið þegar leið á kvöldið og það var í öllum aðalatriðum runnið af mér þegar heim kom þannig að ég vaknaði þokkalega hress um hádegið "í morgun".

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Skall hurð nærri skuldsettum hælum
Næsta færsla: >
Fögur fyrirheit og barningur við danskt húsnæðiskerfi

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com