Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Helgin sem hvarf

Þá er helgin að baki og sannast sagna fór lítið fyrir undirbúningi fyrir utanförina sem nálgast óðum. Í því tilliti er næstum eins og helgin hafi hreinlega gufað upp.

Uppgufunin hófst með svefnleysi aðfaranótt föstudagsins. Ég var kominn í rúmið á sómasamlegum tíma (of syfjaður til að ráðast á uppsafnað uppvaskið) og ætlaði nú aldeilis að sofa vel. Það fór svo að ég lá andvaka vel fram yfir miðnættið og toppaði svo allt saman með því að vakna einum og hálfum tíma á undan vekjaraklukkunni. Föstudagurinn var því ekki sérlega fjörmikill. Reyndar var kollurinn merkilega hress, en skrokkurinn hélt ekki alveg uppi sama hressleikastuðli. Föstudagskvöldið fór því aðallega í það að ráðast til atlögu við uppvaskið og fara snemma að sofa.

Á laugardag var farin ferð í Sorpu með fyrsta ruslapokann úr vinnuherberginu (og ekki þann síðasta), fyrsta fatapokann í fatagám (og ekki þann síðasta), poka með dagblöðum (fullyrði ekki að þeir verði endilega margir til viðbótar), vínflöskum og hillu úr geymslunni í nytjagám. Eftir Sorpu fór ég svo í ríkið og Bónus til að kaupa inn fyrir teiti kvöldsins.

Næst lá leiðin fótgangandi niður í bæ til að fylgjast með Gay Pride með Mardí systur og vinum hennar. Skemmtilegt að venju og margir mjög flottir vagnar. Ég gaf mér reyndar ekki tíma til að fylgjast með skemmtiatriðunum heldur rölti heim eftir krókaleiðum og fór í það að taka betur til í íbúðinni og þurrka aðeins af.

Það var töluvert um afboðanir í teitið þannig að ekki var það sérlega fjölmennt, en það var vissulega með eindæmum góðmennt. Líklega vorum við um tíu þegar mest var, sátum í rólegheitum við spjall fram eftir kvöldi. Ein afboðunin sem barst með SMS þegar leið á kvöldið vakti mikla aðdáun mína:

Sorgmædd afbodun Skula, hann er tvi midur latinn afengisdauda i Borgarfirdi

Reyndar var skeytið sent úr síma Skúla, þannig að ég geri ráð fyrir að andlát hans hafi heldur verið orðum aukið en ég hef fengið það staðfest að landfræðileg lega hans bauð ekki upp á mætingu í partíið (óháð öðrum áhrifaþáttum).

Upp úr miðnættinu fóru stilltari gestir að tínast heim á leið, en Albert skutlaði mér, Jóni Heiðari, Halla og Jóa í bæinn. Við Albert tókum hinn hefðbundna rúnt með millilendingu á Ölstofunni, Vegamótum og að vanda var tekinn einn bjór og nokkrir Backgammon leikir á Grand Rokk. Þar skildust leiðir og ég hitti Jón og co. á Café Óperu þar sem Sumaróperan var að fagna frumsýningu. Með þeim fórum við síðan í eftirpartí og að lokum röltum við Jói nágranni vestur í bæ um fimmleytið.

Eftir 5 tíma svefn brölti ég svo á fætur, skellti mér í sturtu og tók til. Það er töluverður munur að taka til eftir svona partí eða þau sem við Jón Heiðar héldum þegar við vorum upp á okkar besta. Nú þurfti aðeins að tína saman bjórdósirnar, stafla upp plastglösunum og tína upp nokkrar salthnetur af gólfinu. Ekkert um glerbrot eða torkennilegt klístur á gólfum, engar bognar fataslár, engin skóför uppi á veggjum og engir brotnir fataskápar.

Syrtla (sem ég fékk Skagfirska ábendingu um að ætti frekar að heita Surtla, enda væri það gott og gilt ærnafn þar í sveit) sá um tónlistarflutning og nördinn í mér stóðst ekki mátið að tékka á því hvað hefði spilast af random-playlistanum. Alls lauk hún flutningi á 34 lögum, en þrátt fyrir að playlistinn hefði dugað í 3 sólarhringa voru 9 þessara laga leikin tvisvar(!)

Um hálftvö leytið sótti ég Sigmar og Margréti og við renndum suður í Hafnarfjörð að heilsa upp á Vilborgu og kíkja á samfélagsskjöldinn (þ.e. fótboltaleikinn um skjöldinn). Eftir leik tókum við bræður golf í garðinum og ég var svo kominn aftur hingað heim um sexleytið. Til að auka líkur á að ég gæti sýnt af mér dugnað um kvöldið fékk ég mér kríu fram að kvöldmat sem bætti ástandið nokkuð, en ekki entist ég lengi við íbúðarleit á netinu um kvöldið. Þess í stað skreið ég dauðþreyttur í rúmið og lá þar í rúma þrjá tíma og reyndi að sofna. Ekki sérlega skemmtilegt.

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Holulaust grill
Næsta færsla: >
5 km: 28:30 mín

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com