11. ágúst 2004 | 0 aths.
Þetta er reyndar ekki rétta veðrið til að böðlast í tiltekt og pökkun, en ég var farinn að hafa áhyggjur af því hvað mér ynnist hægt að pakka mér niður og var jafnvel að gæla við að fara heim eftir hádegið til þess að taka skorpu. Hins vegar komst ég vel á skrið í vinnunni og lét því duga að yfirgefa svæðið rétt fyrir lok dags.
Það er skemmst frá því að segja að ég sýndi áður óþekkt afköst í pökkuninni og þótt vinnuherbergið líti ekki sérlega tiltektarlega út er ég þó búinn að pakka í 6 bókakassa og fara drjúga umferð í því að henda ýmsum óþarfa. Meðal þess sem ég komst að má nefna:
Ég hafði stefnt á að fara út að hlaupa um sjöleytið, en tók af mér úrið og þegar ég tók mér pásu og hélt að klukkan væri kannski orðin rétt rúmlega sjö kom í ljós að hún var rétt að verða 8!
Eftir þessa skorpu er ég mun bjartsýnni á að þetta hafist allt saman. Því sem eftir er í vinnuherberginu verður lítið mál að grýta í nokkra kassa og með góðum skurk í fataskápunum við fyrsta tækifæri verður þetta langt komið.
Í miðri skorpu var hringt í mig frá Köben, stelpa sem vill leigja mér herbergi. Mér vafðist reyndar tunga um höfuð, enda er ég eiginlega búinn að ákveða að gera ekkert í þessum málum fyrr en um það leyti sem ég fer út (eftir heila 12 daga). Við ákváðum þó að ég myndi hringja í hana aftur á morgun og ræða málin betur (enda mundi ég ekkert hvaða auglýsing það var sem ég hafði svarað og hún var að hringja út af). Ég held þó að það sé jákvætt ef útleigjendur leggja það á sig að hringja til Íslands - það hlýtur að þýða að ekki sé slegist um allt sem losnar.
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request