30. september 2004 | 0 aths.
Þá verður litli leikþátturinn minn frumsýndur á laugardag! Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Hugleik um einþáttungadagskrána. (Nafnið mitt er að vísu beygt vitlaust, en ég ætla ekki að fárast yfir því enda beygjaði ég það svona þar til á lokaári í menntó).
Hugleikur frumsýnir sína fyrstu sýningu í vetur í Kaffileikhúsinu um helgina. Um er að ræða einþáttungadagskrá, sem ber nafnið Þetta mánaðarlega eins og fyrri dagskrár af þessu tagi, en þessi er sú fjórða í röðinni. Að vanda er um að ræða einþáttunga úr smiðju félagsins sem gefa fjölbreytta mynd af því hvað höfundum félagsins liggur á hjarta.
Vantreystir fólk klósettpappír? Hver er afi þinn? Eru leigumorðingjar í Reykjavík? Er kynlíf sjálfgefið á gullbrúðkaupsdaginn? Hver á að passa gullfiskinn? Hvað gerðist í gær? Þessar lykilspurningar eru allar undir í dagskránni.
Þættirnir sex sem fluttir verða heita Leit eftir Júlíu Hannam, Án mín eftir Jónínu Óskarsdóttur, Af hverju láta fuglarnir svona? eftir Ylfu Mist Helgadóttur, Guðmundur eftir Hrefnu Friðriksdóttur, Dagurinn í gær eftir Hildi Þórðardóttur og Á uppleið eftir Þórarin
nStefánsson. Tveir höfundanna, þau Jónína og Þórarinn, eru hér að stíga sín fyrstu skref á hugleikskri höfundabraut.Óhætt er að lofa fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í Kaffileikhúsinu.
Sýningar verða laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. október og hefjast kl. 20.00. Almennt miðaverð er kr. 1.000, en skuldlausir félagar í Hugleik fá ókeypis inn. Aðeins eru um þessar tvær sýningar að ræða og miðapantanir eru í síma 551 2525 og á midasala@hugleikur.is.
Hér í Køben er annars sól og blíða. Fest í skólanum annað kvöld, en núna þykist ég vera að vinna forritunarverkefni...
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request