04. desember 2004 | 0 aths.
Loxins, loxins, loxins. Eftir ótal tilraunir og bras er ég orðinn nettengdur gegnum sameiginlegt þráðlaust netverk mitt og Andreas. Ég fór í dag í visitasíu í musteri Mammons, Fields, fann þar nálina í heysátunni (þ.e. þráðlausan router fyrir B standardinn, ekki G sem er tvöfalt dýrari og er engu betri fyrir mig). Nú er ég búinn að tengja, virkja nýja routerinn hjá TDC og allt virðist í glimrandi sóma.
Þetta reyndist þræleinfalt og gerir mann enn pirraðri yfir öllu veseninu með routerinn sem við keyptum upphaflega og neyddumst lox til að skila þar sem engu tauti var við hann komandi. Við skil var hins vegar enginn samsvarandi router af B staðli til í búðinni, sem kostaði aftur viku töf.
Stutt könnun á niðurhali bendir til þess að ég sé með hraða um það bil 30 KB/sek sem er alveg ágætt (og passar miðað við að við erum með 256 Kb tengingu).
Ef ekki væri fyrir þá staðreynd að skrokkurinn sýnir fyrstu einkenni hita vera að læðast yfir væri ég nú alsæll. En ég er a.m.k. allsæll, sem er ekki slæmt.
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request