Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Splunkunýr vefur í loftið

Þá er ég búinn að leggja lokahönd á lítinn vef fyrir lögfræðistofuna Acta. Útlit og uppsetning var alfarið í mínum höndum, byggt á fyrirliggjandi lógó- og ímyndarhönnun fyrirtækisins. Vefurinn er búinn að vera í pípunum með löngum hléum í um hálft ár og það er áhugavert að fylgjast með hvernig útlitið þróaðist og slípaðist - sér í lagi eftir að ég var búinn að taka áfangann í grafískri hönnun og kom aftur að útlinu eftir töluvert hlé. Eftir þá yfirferð gerbreyttist vefurinn til hins betra.

Kannski ég skelli upp þróunarsögunni í mynndum hérna við tækifæri, hef ekki tíma til þess í augnablikinu...

Þetta er svona dæmigert-maður-þekkir-mann-sem-þekkir-verkefni, þótt reyndar sé upphaflegi tengiliður minn við stofuna ekki lengur starfandi þar. Eins og áður segir hefur það verið lengi í vinnslu, en ég er þokkalega ánægður með útlitslegan afrakstur.

Fyrir kunnuga má þess geta að lógóhönnuðurinn heitir Elísabet Jónsdóttir og er bekkjarsystir Ella bróður úr MA (einnig þekkt sem Beta Gauks).

Skreytimyndin á vængnum kemur úr myndabankanum góða sxc.hu.

Því miður tókst mér ekki að setja upp .htaccess skrá til að gera vefslóðirnar snyrtilegri. Skrá sem ég hafði sett upp og prófað á "mínum eigin" vefþjóni fokkaði öllu upp þegar hún var sett upp hjá Símanum.

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Þegar Vilborg birtist á forsíðu
Næsta færsla: >
Kaupti bækur

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com