19. september 2005 | 0 aths.
Eins og verða vill þegar maður sefur út á sunnudagsmorgunum, þá er stundum erfitt að sofna á eðlilegum tíma á sunnudagskvöldi. Sérstaklega ef kollurinn er á fullu að semja handrit að hreyfimynd...
Í næstu viku eigum við að skila 20-30 sekúndna hreyfimynd í Flash, ég er kominn með allt of metnaðarfulla hugmynd um að útskýra litafræði í lítilli teiknimynd (sem verður örugglega aldrei undir 2 mínútum og mun þar með taka allt of langan tíma að gera...).
Hleypni og gleypni; munurinn á lituðu ljósi og litaðri málningu; litahjól og prisma og allt það hallojsa. Heilmikið magn upplýsinga til að reyna að koma til skila á stuttum tíma - en kitlar vissulega námsefnishöfundinn innra með mér.
Ég lá því að minnsta kosti í tvo tíma og bylti mér í rúminu. Ekki bætti úr skák að neðan þylja var reglulegur trompetblástur og vindstrekkingur á Stórhöfðakvarða. Gekk svo mikið á að ég varð að halda fastataki í sængina svo hún fyki ekki á braut. Ég hef rúgbrauðssneiðarnar sem ég borðaði í hádeginu grunaðar...
Treysti á að liljurnar hafi náð að hlutleysa úrlæðingileystar brennisteinsgufur jafnóðum....
(Þetta minnti mig reyndar á að nýkominn út byrjaði ég að berja niður á disk samtal um prump og samskipti kynjanna - kannski ég ætti að fara að dusta rykið af því.)
Síðan dreymdi mig þvílíka vitleysu, þar sem ég hafði meðal annars sveinfætt barn. (Kannski ekki í tæknilegri skilgreiningu þess hugtaks, en þó þannig að í draumnum gat ég ómögulega áttað mig á því hver myndi vera móðir þess). Barnið var ég að hitta í fyrsta sinn þegar það var orðið a.m.k. tveggja ára og ekki bætti úr skák að það var ýmist strákur eða stelpa...
Nýtilkominn erfingi var þó ekki nema lítill hluti draumfléttunnar (en eftirminnilegastur). Þegar vekjaraklukkan svo hringdi um áttaleytið var ég úrvinda og snarringlaður. Ákvað að nota það sem afsökun að ég hafði ekki sofið nema innan við sex tíma til að leyfa mér að dotta örlítið lengur.
Það reyndist ívið lengra dott en til stóð...
Í dag hef ég svo setið við og þóst vera að vinna í usability greiningum og því að rissa upp storyboard fyrir hreyfiorminn langa. Hefur þó orðið frámunalega lítið úr verki.
Ef ég væri svartsýnni að eðlisfari væri mér hætt að lítast á blikuna með það hvað ég er lengi að komast í gang á þessari önn. Enn sem komið er mun þó ekki ástæða til að örvænta.
Svakalega verður lærdómurinn tekinn með miklu trukki á morgun!
Þeir lesendur sem þrjóskuðust í gegnum allan textann í leit að krassandi bólfaralýsingum eru beðnir afsökunar á misleiðandi fyrirsögn.
Þeim lesendum sem misbjóða frásagnir af loftleysingu býðst engin vorkun á þessum vettvangi...
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request