Fullur, troðfullur
19. september 2005 | 0 aths.
Pósthólfið mitt (thorarinn hjá thorarinn.com) hefur fyllst einhvern nýliðinna daga og hefur í framhaldi af því neitað að taka við framlögum. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en í dag, en er núna búinn að taka aðeins til í hólfinu og auka við kvótann. Hafi einhver lesenda reynt að senda mér póst og fengið hann í hausinn aftur er viðkomandi hér með bent á að reyna aftur.
Það er greinilega að koma tími á að sparka kerfisstjóra thorarinn.com - hann virðist engan vegin starfi sínu vaxinn. Ég þarf að bera það undir ritstjórann...
Er það að tala um sjálfan sig í mörgum persónum ekki annars eitt af skýrum einkennum geðveilu?
Sem aftur minnir á spakmælið: I don't suffer from insanity, I enjoy every minute of it!

Útrætt mál
Lokað er fyrir athugasemdir eftir 30 daga.
Comments are closed for this entry