Vantrú á landanum
28. september 2005 | 0 aths.
Þegar ég sá frétt hjá Washington Post um að sala á orkufrekum jeppum væri að hrynja í Bandaríkjunum flaug mér fyrst í hug að nú væri kannski von til að Íslíngar skæru niður jeppabruðlið og færu að sníða sér bílstakk eftir vexti. Svo fór ég að efast...
Hluti af þróuninni úti í USA er nefnilega að notaðir jeppar og trukkar safnast upp - sem aftur þýðir eflaust að verð á notuðum amerískum flykkjum verður áfram hagstætt til innkaupa af eBay (svo lengi sem gengi krónunnar helst svona hátt).
Ég man ekki hvort ég færði það sérstaklega til bókar hér í sumar, en mér blöskraði fjölgunin á amerískum pikköpp trukkum þegar ég var heima. Flestallir virtust þeir með pall nægilega stóran fyrir þokkalega sundlaug, með mjaðmarháar krómfelgur og pössuðu auðvitað hvergi í stæði.
Ætli bensínprísarnir (sem nota bene eiga bara eftir að hækka) dugi til að breyta eitthvað jeppadýrkuninni heima á klaka líka? Allt virðist geta gerst fyrst Texasbúar eru að gefast upp á trukkunum, en hvað ætli það taki langan tíma að hafa áhrif á íslensku velmegunartáknin? Mér er spurn.

Útrætt mál
Lokað er fyrir athugasemdir eftir 30 daga.
Comments are closed for this entry