30. mars 2008 | 0 aths.
39½ vika var frumsýnd á föstudaginn fyrir nokkurn vegin fullu húsi. Sýningin gekk prýðilega og ég efast um að áhorfendur hafi tekið eftir neinum hnökrum. Þó styttist ein sena sem ég er í um hálfa blaðsíðu eða svo, auk þess sem drappering datt í gólfið.
Miðað við undirtektir þeirra sem ég heyrði í voru gestir mjög sáttir, enda fullyrði ég að engum sem ég þekki myndi leiðast yfir þessari sýningu (þótt ég þori ekki að fullyrða um alla leiðindapúka heimsins).
Eftir að leikarar höfðu haft fataskipti og skrúbbað framan úr sér meikið var skálað í freyðivíni og etnar pissur í samræmi við fornar hugleixkar hefðir.
Leikstjórarnir gáfu öllum frumsýningargjöf; dós af Campbell sveppasúpu með áföstum Durex smokk. Höfundurinn bætti um betur og gaf öllum leikurunum sælgætissnuð og leikstjórunum lambaspörð í poka.
Eftir það var svo haldið í alvöru frumsýningarpartý vestur á Eyjarslóð þar sem sungið var við gítarundirspil raddlauss aðalleikara fram eftir nóttu. Við Alexandra vorum þar til ca. 3, en mér skilst að síðustu menn hafi yfirgefið svæðið skömmu síðar.
Ég vaknaði svo óþægilega snemma daginn eftir, en þrjóskaðist við og lá í móki uppi í rúm fram undir hádegið - þegar ég steinsofnaði.
Morgun/hádegis/síðdegisverður fór því saman í Búlluborgara með frönskum um fjögurleytið.
Það er engin miskun í sýningarplaninu og önnur sýning var strax í gærkvöldi. Menn voru heldur geyspandi þegar mætt var á staðinn, en eftir að sýningin hófst var ekki að merkja neinn annarar-sýningar-brag. Fínn kraftur í mannskapnum og mikið hlegið í salnum.
Innan skamms fer ég svo að leggja af stað til að taka þátt í þriðju sýningunni og þá verður það 7. kvöldið í röð þar sem allur hópurinn mætir niður í Möguleikhús og rennir í gegnum leikritið í heild sinni. Ég held það verði allir fegnir að fá nokkurra daga frí fram að sýningunni á fimmtudaginn.
Enn og aftur hvet ég lesendur til að skella sér - þetta er prýðileg skemmtun (þótt ég segi sjálfur frá).
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request